Bíldudals eina von...
02.08.2006 08:44:35 / pozman

Nýir tímar

Jæja nú fer að styttast í það að ég flyt í höfuðborgina og byrja að vinna. Af þessu tilefni ætla ég að fara skrif mín (ekki mikil skrif) yfir á www.pozi.bloggar.is. Endilega kíkið þangað og kommentið eða kvittið í gestabókina:) heyrumst!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 11:13:14 / pozman

17.júlí

Já þá er minna en mánuður þangað til að ég flyt í bæinn og byrja að vinna þar, loksins segir maður nú bara... enda tilhlökkunin mikil :) Héraðsmót HHF í frjálsum íþróttum var haldið í gær, vanalega er mótið í 3 daga en það var svo brjálað verður á laugardaginn að ekki var hægt að keppa og því var keyrt á allar greinar á sunnudaginn. var frá 10 um morguninn þangað til 17 um daginn. Hafðist á endanum og það var léttir. Þá eru nokkur mót eftir unglingalandsmótið á laugum og nokkur innan héraðssambandsins í fótbolta og frjálsum.

Annars lítið að frétta það gerist fátt markvert hérna og það verður að segja að þegar lítið er að gerast í kringum mann og veðrið er búið að vera helvíti þá veður maður niðurdreginn. Þetta er búið að vera skelfingar sumar, finnst mér alla vega:), og því hlakka ég mikið til að skipta um umhverfi og fara í bæinn (það verður ef laust drep líka8) og gera eitthvað.

Áttu stórann flutningabíl, ef já hafðu samband við mig í síma 868-7961

verð í bandi síðar... hafið það gott
kv Aron "ekki-skemmtilegt-sumar-get-ekki-beðið-eftir-vetrinum" Hauksson|

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 21:08:36 / pozman

27.júní 2006

Já núna eru línurnar farnar að skýrast fyrir næsta vetur, við erum kominn með íbúð í rvk nánar tiltekið í Breiðholtinu, Hléskógar heitir víst gatan og fengum við að vita þetta í dag. 80 fm2 íbúð og í nýlegu standi og við erum sátt við hana. Þá er það næsta mál og það verður að flytja dótið okkar suður en það kemur...

Í dag eru ég og Hr´ðný búin að vera saman í 1 ár og 8 mánuði, til hamingju við:D, Hr´ðný er að fara í svona kveðju-partý í kvöld hjá Ástríði vinkonu sinni hérna á Patró og það verður örugglega gaman hjá henni. Ég ætla að taka það rólega heima og kannski horfa á mynd eða eitthvað...

Annars erum við í góðum gír hérna fyrir vestan já ég útskrifaðist þann 24 og svo leigði bekkurinn sal um kvöldið og þar var glatt á hjalla. Enduðum svo á Hlölla áður en hoppað var upp í næsta cab...

Mót um næstu helgi og það var mót í gær... líklegast fótbolti á fimmtudaginn þannig að það er nóg að gera n´na.

Þangað til næst, aron...:|

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 09:49:10 / pozman

19.júní

Sæl/l nú er júní langt á veg kominn sem þýðir að sumarið er næstum hálfnað:/ eins og er erum við Hr´ðný að leita okkar að íbúð til þess að leigja í Rvk, þannig ef að þú lesandi góður veist um einhverja íbúð sem er ekki á fáránlegu uppsprengduverði þá hringiru endilega í mig í síma 868-7961 og tjáir þig... En já ég er kominn með vinnu í Háteigsskóla í rvk næsta vetur og er mikill léttir að hafa fengið starfið þar. Útskrift er svo hjá mér á laugardaginn næsta í Laugardalshöllinn, enn þá verða einmitt útskrifaðir yfir 500 kandidatar frá KHÍ (gaman að því). Þess vegna er ég einmitt að fara panta núna fara með Baldri yfir Breiðafjörð á fimmtudagskvöld. En já nenni ekki að skrifa meira í bili (in cars:)) þannig að ég verð í bandi,

Kveðja íþróttafræðingurinn ;)  

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 11:30:01 / pozman

þetta hafðist allt en hvað nú...

Já skólinn er búinn og á ég bara eftir að fá einkunn fyrir lokaverkefnið mitt (ætti reyndar að vera löngu komið inn en...). Ég er búinn að skella mér 2x til útlanda eftir skólann ég fór til Norge með henni Hróðnýju og kíktum við á tengdó. Það var mjög gaman að hitta þau og tjilla í Norway, stoppuðum í eina 5 daga og héldum síðan heim. Þá var skellt sér á Patreksfjörð og byrjað á því að þrífa og koma sér fyrir í íbúðinni sem við verðum í í sumar (Sigtún 39) og kláruðum við það um 06.00 um morgunnin.

Ég fór síðan í viku til Fuerteventura í útskriftarferð með bekkjarfélögunum... það var frábær stemming í hópnum og í ferðinni. Ég vill nota tækifærið og þakka ykkur fyrir frábærara stundir á síðast liðnum 3 árum. takk fyrir mig...

En já ,,back to normal" nú þarf maður að fara gera eitthvað kem með meira seinna...

bæjó frá patró

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 09:53:47 / pozman

hvað er það...

Við fórum að spá félagarnir, superman getur stoppað byssukúlur með brjóstkassanum á sér en ef einhver hendir byssu í átt til hans þá beygir hann sig niður. Andrés Önd er alltaf í peysu og með húfu en engu að neðan, samt sem áður er hann alltaf með handklæði utan um sig að neðan þegar hann er nýbúinn í sturtu... hvað er það?? Ert þú með fleiri svona dæmi.... commentaðu!!!!

lærdómshesturinn poze!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 13:43:38 / pozman

Þetta er að hafast...

Jæja nú fer heldur betur að styttast í annan endan á minni skólagöngu (í bili allavega) því að nú fer að líða að skil á lokaverkefnum og strax í kjölfarið eru það prófin. Ég fer í hva 3 próf, skriflegt, verklegt og munnlegt. Námsefnið er Siðfræði, íþróttameiðsl og endurhæfing, og íþróttir fatlaðra. Verð svo kominn í "sumarfrá" 11.maí...

Ég og Hróðný ætlum að skella okkur til Norge strax að loknum prófunum hjá henni og förum við snemma þann 13.maí. Þar munu mamma hennar og pabbi taka á móti okkur og hlakka ég mikið til þess að fara heim til þeirra. Fæ þá allar barna myndirnar af henni Hróðnýju minni:D eða er það ekki???

Kem svo heim 18.maí... missi af silvíu nótt í evróvision en þannig er þetta bara

Fer svo aftur út 23.maí og þá til Fertaventura í útskriftarferð með bekknum mínum frá laugarvatni. Verð úti í viku og kem þá aftur svellkaldur á klakkann.

Meira var það ekki í bili kem með erindi í prófavikunni næst og vonandi verður það innihaldsríkt hjá mér. Ætla að fara læra meira... verðum í bandi!!!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 10:16:08 / pozman

Hæ hvað ert að frétta??

Já mér var bent á það í gær að ég hefði ekkert bloggað lengi... það er nú bara ástæða fyrir því; núna er allt að gerast í skólanum, það eru rúmlega 2 vikur í 1 próf og ég á að skila lokaritgerðinni 2.maí. Skipulagning þjálfunar verkefnið á að skila á 26.apríl sem og siðfræðiverkefninu. Því hef ég ekki haft tíma til þess að rit neitt fagurt hér inn en það breytist vonandi fljótlega (svona þegar prófin byrja).

Lokaritgerðin gengur bara vel og þetta á eftir að klárast tímanlega þannig að ég er bara nokkuð sáttur... ennþá.
Páskafríið Mitt 2006
  • Ég var á Laugarvatni um páskana sjálfa og hafði það mjög gott,
  • Ég og Hróðný borðuðum 2 páskaegg nr 4 saman, eitt nóa siríus og annað svona Rís-egg,
  • Við fórum út að borða á Ítalíu á laugarveginum og það var ótrúlega vel heppnuð ferð hjá okkur,
  • Ég smakkaði ekki bjór í þessu páskafrí (eða mig minnir það:))
Þetta voru kannski svona helstu punktarnir hjá mér, en núna ætla ég að fara að læra meira,
Kveðja verðandi íþróttafræðingurinn;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 09:59:44 / pozman

hvað er títt???

J<ja það er alveg brjálð að gera þessa dagana, ég og Hróðný erum í rvk og gistum hjá systir hennar þangað til að við förum vestur á firði, sem  verður líklega á miðvikudag. Við eigum pantað í >Baldur en það er óvíst hvenær hann fer. En maður verður að vera duglegur í "fríinu" að læra og þýðir lítið að slaka á...  Hlakka samt til að kíkja heim í sveitina, í Dalinn eins og pönkarinn segir...

Dallas vann stórslagin í vesturdeildinn í NBA-boltanum í nótt og var Dirkarinn aðeins of stór og setti 30 kvikindi á meðan að Duncan 13 og Ginobilli var atkvæðamestur hjá spurs með 22stig. Jafn leikur í öllum fjórðungum nema þeim 3ja þegar að Dallas náði 8 stiga forystu og hélt henni út... damn u dallas

jæja er að fara horfa á Hródduna spila, verðum í bandi... pozman


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 14:24:26 / pozman

Hugleiðingar

strákurinn lagðist undir feld og skoðaði gildi þessarar síðu fyrir umheiminn; eftirfarandi hugleiðingar komu upp...
  • svona fyrir efnahag íslenska ríkisins þá ætla ég ekki að útrýma þessari síðu, bankarnir hringdu í mig og báðu mig um að, eins og þeir sögðu ,,kepp up the good work ya!!!"
  • Þar sem þetta er mesti gagnagrunnur sem íslenskir fjölmiðlar eiga þá get ég ekki útrýmt þessari síðu
  • Þetta er eina tenging mín við fjölskyldu mína, þess vegna get ég ekki hætt þess
more to come, pozman

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 14:20:03 / pozman

Hugleiðingar

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 00:31:14 / pozman

Jæja friddz nú þú!!!

Nú er kominn síða þar sem hægt er fylgjast með því sem fer fram í DALNUM hverju sinni...
www.blog.central.is/thenry

Það er pönkarinn sem ætlar að láta gaminn geysa á þessari síðu eins og honum einum er lagið... Endilega tjékkið á dansaranum mikla frá bíldó...8)

leiter pozman...

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 19:00:27 / pozman

2.mars...

sæl öll sömul... já ég fór að vinna í þorlákshöfn á þriðjudaginn í uppskipun, við fórum sem sagt 10 strákar úr skólanum að vinna en já vorum mættir galvaskir kl 06 þarna:S

en svo var ég sendur á einhverja aðra höfn kl 07 og var settur í löndun með einhverjum gömlum sjóara sem reykti bara pípu og sagði fátt (kannski gott áttum kannski lítið sameiginlegt)... og ég hitt strákana aðeins 2 allan daginn þannig að þetta var sérstakt í meira lagi en hvað gerir maður ekki fyrir góðan pening....

Er núna að vinna... fyrir KÓ the king...

verð í bandi.!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 10:45:32 / pozman

fjandinn sjálfur...

Já í gær vorum við í Laugdælum að spila við ÍBV, í stuttu máli má segja að við töpuðum... einn maður hjá þeim skoraði ca 45 stig og hitti örugglega svona 12 þriggjastiga skot... sem sagt loka tölur urðu 75-80 fyrir vestman-island...

Jebb, í dag er víst Bollu-dagurinn og vekur það upp margar minningar, oftast um að maður hafi fengið í magann eftir að hafa borðað yfir sig af þessum bollu fjöndum... damn you!!!! Ætla nú samt að gera mér ferð á sellarann með Eyfa til þess að skella mér á bollu og kíkja í Bónus-ekkert-bruðl. Svo þegar við komum heim er meiningin að skella sér til frænku þinnar niður á bókasafni og reyna finna sér eitthvað gagnlegt í bók, það verður nú þrautinn þyngri... svo er það vinna kl 16-21 niður í íþróttahúsi:S

Men hvað ég væri til í að vera á Akureyri með Hróðnýju, gæti þá kennt henni sitthvað um vetrar-íþróttir... en það kemur bara síðar:D

thats all folks.... verð í bandi

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 11:30:18 / pozman

Síðan skein sól

já sæl nær og fjær... þessa viku er frí í skólanum hjá mér vegna þessa að 1.árs nemarnir eru í árlegu skíðaferðinni á Akureyri og því er hinum árunum gefið frí með. Þannig að strákurinn er bara einn upp á Laugarvatni því að hún Hróðný er fyrir norðan. Hún er samt akkúrat núna á Siglufirði, var að keppa í blaki þar í gær ásamt bekkjarsystrum sínum og stóð sig víst prýðilega (las það í samúel:S)

Ég er að fara keppa í körfu á eftir á móti ÍBV hérna upp á vatni og ætlum við að rífa okkur upp eftir seinast leik og reyna að gera eitthvað að viti inn á vellinum. Vinnum allavega ekki ef við spilum eins og síðast þar sem að við vorum frekar eins og 5 einstaklingar inn á vellinum (ákaflega pirraðir einstaklingar) og því var lítið að ganga hjá okkur. Sem sagt erfiður leikur í uppsiglingu...

Annars verð ég bara hérna upp á Laugarvatni... eyfi líka líklega... ég er að fara vinna á mánudag og þriðjudag í íþróttahúsinu fyrir hann Atla, þannig að það er nú einhver plús við þetta allt. Verð líka að læra svolítið í þessari viku þýðir ekkert annað... en já kem með fréttir af leiknum á eftir...

sí jú leitir...


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9